Samþykktir Sambands húsnæðisnefnda

92. fundur
Mánudaginn 13. febrúar 1995, kl. 17:09:43 (4199)


[17:09]
     Félagsmálaráðherra (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég vil fyrst geta þess að samkvæmt drögum að yfirliti yfir þingvikuna er þetta mál á dagskrá á föstudag og ég get tekið undir að ég mundi gjarnan þiggja að það kæmi á dagskrá fyrr en það er sett þarna. Ég vil líka taka fram að ég hef átt viðræður um mjög marga um frv. og reynt eins og kostur er að tryggja stuðning við það frá þeim sem láta sig þetta mikilvæga mál varða.
    Vegna orða þingmannsins um að hann hefði ekki átt von á því eða e.t.v. hefðu ýmsir ekki átt von á því að frv. væri flutt af ráðherra Alþfl. sem setti fulltrúa verkalýðshreyfingar út úr húsnæðisnefndum sveitarfélaga tek ég fram að ég hef tekið við þessu frv. nákvæmlega eins og það hefur komið frá þeirri nefnd sem vann það og var full samstaða um þetta mál í nefndinni og lagt áherslu á að leggja það þannig og strax fyrir þingið. Ég mun hins vegar sjálf gera tillögu um að fulltrúar verkalýðshreyfingar fari ekki út úr húsnæðisnefndum sveitarfélaganna eins og tillaga er um í frv. og það mun náttúrlega koma fram þegar ég mæli fyrir frv.
    Ég sé ekki ástæðu til að fjalla nánar um vextina. Það hljómar einfalt að segja: Látum vextina bara lækka aftur. Þetta er e.t.v. flóknari stefnumörkun en svo og ekki má gleyma því varðandi vexti að það eru vaxtabætur sem vigta þar á móti en þetta ákvæði er í skoðun eins og fleiri sem álitamál hafa verið um. Ég hef lagt mikla áherslu á það að þegar mælt verður fyrir þessu frv. verði full sátt um sem allra flest ákvæði og mér þætti mjög mikilvægt þó að skammur tími sé að það komi í ljós að góð sátt sé um úrbótaákvæðin öll sem eru í þessu frv. og að þingmenn muni sameinast um að hleypa þeim í gegn og þá fremur að skilja eftir einhver ákvæði sem e.t.v. mundu á einhvern hátt orka tvímælis. Það er stefna mín að þannig verði staðið að þessu máli því að það eru svo mörg og góð og mikilvæg atriði í þessu frv. sem ég trúi að sem flestir þingmenn leitist við að gera að lögum á þessu vori.