Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 13:45:21 (4249)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og fram kom í máli hv. þm. þá er þetta mál á dagskrá næst á eftir því máli sem forseti hefur nú lýst að verði tekið á dagskrá og til umræðu. Forseti hefur ekki hugsað sér að breyta því. Væntanlega gefst tími til að ræða einnig 3. dagskrármálið þó síðar verði í dag. Forseti vill minna á að gert er ráð fyrir að það verði kvöldfundur þannig að það gefist tími til að taka þau mál til umræðu og afgreiðslu sem á dagskrá eru.