Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 13:53:04 (4253)

[13:53]
     Valgerður Sverrisdóttir (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Þar sem ég sat fund forsætisnefndar í gær þar sem rædd voru þingstörf vikunnar þá kemur mér ekkert á óvart það sem hér gerist nú vegna þess að þá var það ljóst að fyrsta mál á dagskrá í dag yrði frv. um náttúruvernd. Reyndar var reiknað með að í gær yrði hafin umræða um embættisfærslu umhvrh. en þó svo henni lyki ekki í gær að þá yrði þetta fyrsta málið í dag. Þetta vildi ég bara staðfesta, hæstv. forseti.