Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 13:59:39 (4258)

[13:59]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Auðvitað er það svo að sumir þingmenn vilja helst alltaf vera að velta sér upp úr fjölmiðlunum og það er allt í lagi. ( ÓRG: Sumir ráðherrar geta aldrei stillt sig.) Það er að vísu rétt, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, jafnvel sumir ráðherrar, og jafnvel sá sem hér stendur fær stundum snert af þessu. Hins vegar vil ég út af orðum hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar taka alveg skýrt fram að ég var alveg reiðubúinn til þess að þetta mál yrði rætt í gærkvöldi og það var ekki að minni beiðni sem sú umræða fór ekki fram, enda tóku þingmenn eftir því að ég var hér til þénustu reiðubúinn. ( ÓRG: Það er ekki það sem ég var að spyrja um. Það er röðin í dag, ráðherra.)