Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 14:26:50 (4269)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og forseti hefur áður bent á var búin að fara fram umræða um fundarstjórn forseta sem sneri að þessu máli sem nú er hafin umræða um, en hv. 4. þm. Austurl. óskar eftir að taka til máls um fundarstjórn forseta og væntir forseti að þá verði efni ræðu hans fundarstjórn forseta.