Náttúruvernd

94. fundur
Þriðjudaginn 14. febrúar 1995, kl. 23:36:45 (4284)



     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill í tilefni af athugasemdum hv. þm. minna á að aðeins sex hv. þm. hafa enn komist að með ræður sínar og mér finnst það mjög sanngjörn krafa að verða við óskum hv. þm. um að fá að flytja mál sitt hér og það í samfelldri umræðu sem hlýtur að vera eðlilegt miðað við gang málsins. Forseti er reiðubúinn til að sitja hér þar til umræðu lýkur og forseti hefur aldrei hræðst það að vera við umræður að nóttu til og forseti er ekki vanur því að hlaupa í koju á meðan dekkið er fullt af fiski.