[01:00]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Ég skildi það svo á máli hv. þm. Jóns Helgasonar að hann óskaði eftir því að á þessu stigi umræðunnar mundi umhvrh. veita svör við ýmsum þeim spurningum sem til hans hefur verið beint. Ég vil bara segja að það er alveg sjálfsagt mál að ég hér og nú geri grein fyrir ýmsum atriðum sem hefur verið spurt um ef það má verða til þess að greiða fyrir umræðunni.