Náttúruvernd

94. fundur
Miðvikudaginn 15. febrúar 1995, kl. 01:30:04 (4307)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Eins og gefur að skilja getur forseti ekki mælt tímalengd á ræðum sem ekki hafa verið fluttar og forseti hefur ekki lagt í vana sinn að spyrja hv. þm. um það hversu langar ræður þeir muni halda. Þess vegna getur forseti ekki svarað þessari spurningu en hann er í góðri von um að hér verði áfram haldnar mjög málefnalegar ræður og kjarnyrtar og skorinortar eins og hv. þm. eiga að venjast úr ræðustól á Alþingi og eins og virðingu þess samboðið.