Tilkynning um utandagskrárumræður

95. fundur
Miðvikudaginn 15. febrúar 1995, kl. 13:34:42 (4321)


     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill tilkynna um utandagskrárumræður sem fram munu fara í dag. Í fyrsta lagi fer fram umræða kl. tvö að beiðni hv. 9. þm. Reykv., Svavars Gestsonar. Hann beinir máli sínu til hæstv. menntmrh. og er gert ráð fyrir að sú umræða standi í eina klukkustund. Umræðuefnið er staðan í kennaradeilunni með hliðsjón af afgreiðslu grunnskólafrumvarpsins.
    Í öðru lagi er utandagskrárumræða sem fer fram um kl. hálffjögur og þar er málshefjandi hv. 3. þm. Norðurl. e., Valgerður Sverrisdóttir og beinir hún máli sínu til hæstv. sjútvrh. Sú umræða fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og umræðuefnið er hrefnuveiðar.