Staðan í kennaradeilunni með hliðsjón af afgreiðslu grunnskólafrumvarpsins

95. fundur
Miðvikudaginn 15. febrúar 1995, kl. 14:07:25 (4343)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hefur verið tilkynnt hefst nú utandagskrárumræða. Málshefjandi er hv. 9. þm. Reykv., Svavar Gestsson. Efni umræðunnar er staðan í kennaradeilunni með hliðsjón af afgreiðslu grunnskólafrumvarpsins. Það hefur orðið samkomulag um að ræðutími verði með þeim hætti að málshefjandi og hæstv. ráðherra hafi 8 mínútur hvor í fyrra sinn og 4 mínútur í það síðara og aðrir hafi 4 mínútur. Þessi umræða má standa í eina klukkustund.