Umræður um dagskrármál

96. fundur
Fimmtudaginn 16. febrúar 1995, kl. 13:09:56 (4401)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Vegna athugasemdar hæstv. umhvrh. þá lítur forseti svo á að það verði eigi til að greiða fyrir meðferð málsins að strika þá hv. þm. út af mælendaskrá sem hér eru eigi viðstaddir og vill forseti nýta tímann meðan beðið er ræðumanna í því máli með því að taka hér fyrir 9. dagskrármálið eins og kynnt hefur verið.