Launamyndun og kynbundinn launamismunur

97. fundur
Föstudaginn 17. febrúar 1995, kl. 16:16:20 (4482)


[16:16]
     Tómas Ingi Olrich :
    Virðulegi forseti. Ég vil lýsa því yfir hér að ég er mjög ánægður með að þessi frv. skuli hafa verið lögð fram. Eins og kom fram í máli hæstv. fjmrh. þá eru þessi frv. að hluta til um sama efni og frv. sem sá sem hér stendur hefur flutt. Ég tel að þarna sé um mikið og sjálfsagt réttlætismál að ræða og fagna því að frv. eru fram komin og vona að þau nái fram að ganga á þessum stutta tíma sem eftir er þings.