Náttúruverndarár Evrópuráðsins

99. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 17:01:13 (4526)


[17:01]
     Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir) :
    Frú forseti. Hinn 1. febrúar sl. var ég viðstödd opnunarhátíð náttúruverndarárs Evrópuráðsins úti í Strassborg meðan þing Evrópuráðsins stóð þar yfir. Þar kom fram að efnt var til náttúruverndarárs árið 1970 sem þótti takast mjög vel. Þá var sjónum einkum beint að villtum svæðum og svæðum fjarri mannabyggð, villtu dýralífi og jurtalífi og öðru slíku sem ástæða þótti til að benda fólki á að þyrfti að vernda.
    Nú er hafið náttúruverndarár Evrópuráðsins árið 1995 og á því er ætlunin að beina sjónum að náttúrulífi og náttúru í nágrenni mannabyggðar eða jafnvel innan mannabyggðar. Í tilefni af þessu náttúruverndarári langar mig að beina þeirri spurningu til hæstv. umhvrh., sem er að finna á þskj. 657, sem er svohljóðandi:
    ,,Hvað ætla íslensk umhverfisyfirvöld að gera í tilefni af náttúruverndarári Evrópuráðsins 1995?``