Vernd barna og ungmenna

100. fundur
Mánudaginn 20. febrúar 1995, kl. 18:17:14 (4543)


[18:17]
     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. á sæti í þeirri nefnd sem um málið fjallaði og honum er kunnugt um það að náðst hefur samkomulag milli þeirra ráðherra sem að málinu standa. Ég vísa í nál. frá félmn. sem er undirritað af hv. þm., brtt. 2, í henni felst það samkomlag sem orðið hefur.