Raforkukostnaður garðyrkjunnar

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 15:28:10 (4576)


[15:28]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Mér finnst að hv. 4. þm. Suðurl. hefði ekki einasta átt að beina máli sínu til hæstv. iðnrh. vegna þess að það er fullkomin ástæða til þess að ræða þetta mál við hæstv. utanrrh. og hæstv. landbrh. líka. Hæstv. utanrrh. hefur fórnað hagsmunum garðyrkjunnar og hæstv. landbrh. hefur látið hann gera það án þess að reisa þar við rönd. Þannig að það er ekki bara við hæstv. iðnrh. að tala um þetta mál.
    Það er búið að koma garðyrkjunni í þrot og það er fyrst og fremst með stjórnvaldsaðgerðum. Það er út af fyrir sig gott og blessað að biðja um lægra orkuverð en á því er náttúrlega sá hængur að annaðhvort verður að hækka taxta einhvers staðar annars staðar ellegar að auka við halla orkufyrirtækjanna og hvorugur kosturinn er góður. Landsvirkjun hefur, eins og kom fram í ræðu hæstv. iðnrh., komið talsvert til móts við garðyrkjuna með afslætti síðan 1993. Og mér var það sérstakt ánægjuefni og beitti mér sérstaklega fyrir því í stjórn Landsvirkjunar að þessi afsláttur yrði veittur. Samþykktin um viðmiðunina var gerð þá undir þeim kringumstæðum sem þá voru svo að ég sé ekki alveg einfaldan flöt á því að færa klukkuna aftur til 1990 eins og hv. 4. þm. Suðurl. lagði til.
    Orkufyrirtækin þurfa náttúrlega að koma inn í tilraunastarfsemina og hafa vilja til þess. Ég vil láta það koma hér fram að það er Rarik sem rýfur en ekki Landsvirkjun. Það er sjálfsagt að kanna hvort hægt er að koma þarna að einhverjum mýkri skilyrðum og almennt séð tel ég að það sé eðlilegt miðað við kringumstæður að reyna að koma eftir því sem mögulegt er til móts við garðyrkjuna í hennar miklu erfiðleikum.