Flugmálaáætlun 1994--1997

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 18:00:40 (4611)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hlýtur að taka undir það með hv. þm. að við það er auðvitað ekki unandi að nefndir komi saman gegn vilja hv. þm. sem í nefndinni eru á meðan þingfundur stendur yfir. Forseta er ljúft að ræða þetta mál við forsætisnefnd og formann nefndarinnar.