Flugmálaáætlun 1994--1997

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 18:09:55 (4618)



     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti beinir nú þeirri ósk til hv. þm. að reynt verði að ná samkomulagi um að þinghald haldi áfram. Forseti mun hins vegar beita sér fyrir því að í kvöldmatarhléi verði reynt að semja um framhald fundarins í kvöld og jafnvel nótt sem mér skilst að gæti orðið. Betur getur forseti ekki gert en að fallast á þau sjónarmið sem hér hafa fram komið og mun reyna að leita samkomulags um frekara framhald fundarins.