Flugmálaáætlun 1994--1997

101. fundur
Þriðjudaginn 21. febrúar 1995, kl. 18:43:42 (4632)


[18:43]

     Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Rökstuðningur hefur nú þegar komið fram hjá síðasta ræðumanni og ég sé ekki ástæðu til að lengja þetta. Mér finnst ekki skynsamlegt að vera að hringla frekar með mál í dagskránni en forseti hefur neyðst til að gera. Mér finnst ekki vera rök fyrir því að fara að taka fyrir nýtt mál og fresta þessari umræðu og styð þau sjónarmið sem fram hafa komið og vænti að forseti hafi skilning á þeim sjónarmiðum.
[Fundarhlé. --- 18:44]