Framhald þingfundar

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 15:00:23 (4750)


[15:00]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég er hálfhissa á þessari niðurstöðu. Ég sé ekki beint rökin fyrir því að menn séu að mæla

hér fyrir þingmannafrumvörpum við 1. umr. Það er borin von að þau nái fram að ganga í þessari lotu. Ég hefði talið eðlilegt og eins og mér heyrðist á forseta í upphafi, að klára þetta mál sem nú er á dagskrá, en við það verður að búa ef frú forseti hefur ákveðið að fresta umræðunni um það mál. Mér finnst þetta hins vegar vera nokkuð skrýtin fundarstjórn.