Framhald þingfundar

102. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 15:06:42 (4756)


[15:06]

     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Mér finnst annaðhvort eiga að hafa þingfund eða ekki þingfund. Það hefur verið sú venja þegar þingflokkar hafa óskað eftir tíma til að halda fundi þá hefur alltaf verið orðið við því. Nú skilst mér að tveir þingflokkar hafi boðað til fundar og að því leyti til er óeðlilegt að verða ekki við þeirri ósk að fella niður fund. Ég er út af fyrir sig ekkert að hafa á móti því ef einhverjir þingmenn vilja mæla fyrir málum sínum fyrir þunnskipuðum sal, þá vil ég ekkert vera að koma í veg fyrir það.