Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumr.)

103. fundur
Miðvikudaginn 22. febrúar 1995, kl. 20:32:28 (4766)

[20:32]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 30 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, um það bil 10 mínútur í hverri. Jóhanna Sigurðardóttir, 12. þm. Reykv., utan flokka, hefur 15 mínútur til umráða í lok fyrstu umferðar. Röð flokkanna verður í öllum umferðum þessi: Samtök um kvennalista, Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl. og Alþb.
    Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Samtök um kvennalista talar í fyrstu umferð Kristín Ástgeirsdóttir, 15. þm. Reykv., í annarri umferð Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, 6. þm. Vestf., og í þriðju umferð Guðrún J. Halldórsdóttir, 18. þm. Reykv. Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. verða í fyrstu umferð Davíð Oddsson forsrh., í annarri umferð Þorsteinn Pálsson sjútvrh. en í þriðju umferð Halldór Blöndal landbrh. Af hálfu Framsfl. talar í fyrstu umferð Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl., í annarri umferð talar Stefán Guðmundsson, 4. þm. Norðurl. v., og í þriðju umferð Jóhannes Geir Sigurgeirsson, 6. þm. Norðurl e. Fyrir Alþfl. talar í fyrstu umferð Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh., í annarri umferð Rannveig Guðmundsdóttir félmrh. og í þriðju umferð Gunnlaugur Stefánsson, 5. þm. Austurl. Ræðumenn Alþb. verða í fyrstu umferð Ólafur Ragnar Grímsson, 8. þm. Reykn., í annarri umferð Margrét Frímannsdóttir, 4. þm. Suðurl., og Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl., en í þriðju umferð Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e.