[15:17]
Frsm. 2. minni hluta menntmn. (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hæstv. menntmrh. sagði áðan að það væri ætlast til að hann sitji þegjandi undir ruglingu frá stjórnarandstæðingum. Þar sem ég er stjórnarandstæðingur og hef talað í þessu máli, er reyndar frsm. 2. minni hluta hv. menntmn., þá efast ég ekkert um að hann er m.a. að tala um mig. Ég frábið mér slíkar ásakanir, að ég hafi verið með eitthvert rugl þó ég hafi fært fram rök gegn þessu frv. Og ég vil halda því fram að hæstv. menntmrh. hafi með ræðu sinni hér áðan endanlega komið í veg fyrir það að grunnskólafrv. verði samþykkt nú á þessu þingi.