[21:41]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að koma á neyðarsímsvörun einhvern veginn með þeim hætti sem verið er að leggja til hér og ég held að það sé mjög brýnt að styðja það. Allir höfðu ákveðnar skoðanir á því, sem komu að þessu í nefndinni, á hvern hátt þetta mætti gerast best. Þar sem ég gat ekki komið því á framfæri í 2. umr. þá vil ég nota tækifærið hér og segja að að mörgu leyti hef ég talið það heppilegt að einn aðili héldi utan um þetta og hafði þá sérstaklega í huga Slysavarnafélag Íslands sem ég veit að hefur mjög gott net út um landið og ýmis sveitarfélög hafa mælt með því. En ég held að sú niðurstaða sem hér hefur fengist geti leitt til mjög góðrar lausnar þar sem við nýtum alla þá bestu krafta sem kostur er á hér á landi og hafa komið að þessu og byggja á reynslu í þessum málum, því það er töluverð þekking fyrir hendi og það er að sjálfsögðu þessara aðila að sjá til þess að það verði gert með þeim hætti sem best er. Ég trúi því að það verði hægt að ná góðu samkomulagi og sátt á grunni þeirra laga sem vonandi verða hér samþykkt um neyðarsíma, en hér er fyrst og fremst um afskaplega gott og þarft mál að ræða og þar af leiðandi vona ég að þingið greiði fyrir því.