Tilkynning um utandagskrárumræðu

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 10:31:52 (5114)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill tilkynna að kl. 13.30 í dag fer fram utandagskrárumræða og verður hæstv. fjmrh. til andsvara. Það er hv. 1. þm. Norðurl. v., Páll Pétursson, sem óskar að ræða um kennaraverkfallið. Þessi umræða fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga og stendur í hálfa klukkustund.