Vegáætlun 1995--1998

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 18:25:08 (5205)


[18:25]
     Hjörleifur Guttormsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki á því hvers vegna er ekki lokið við þessa umræðu. Ég hélt að það væru tilmæli um það að menn frekar styttu mál sitt og það væri hægt að ljúka umræðu um vegamálin í samhengi. Ég vildi heyra rök fyrir því að verið sé að fresta umræðunni. Ég hafði ekki ætlað mér að tala en sá mig tilknúinn til þess að setja mig á mælendaskrá til að koma að örstuttri athugasemd.