[20:33]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Um þetta frv. var lítið fjallað í hv. allshn. og það litla sem var þó um það fjallað þá gat ég því miður ekki verið viðstödd, það voru nú ekki nema svo sem tíu mínútur. Þar af leiðandi er ég ekki í stakk búin til að taka afstöðu til þessa máls þó að það sé eflaust alveg skaðlaust að það fari í gegnum þingið.