Sjónvarpsútsendingar frá Alþingi

3. fundur
Miðvikudaginn 05. október 1994, kl. 13:53:17 (41)



     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og forseti hefur áður sagt, þá var það með semingi að forsætisnefnd ætlaði að láta þetta yfir þingið ganga, ef má orða það svo, að svo stöddu svo að þessar útsendingar féllu ekki alveg niður. Kannski ekki síst vegna þess fjölda fólks sem fylgist með þessum útsendingum og vill ekki missa af þeim. En það var hreint ekki með glöðu geði að forsn. sætti sig við það ástand sem nú varir um hríð.