[11:45]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það var einmitt það sem ég var að nefna áðan að það væri til í lögum að hafa allt að tífaldar sektir á það sem undan er skotið. Ég endurtek að ég sé ekki alveg hvort það þjónar tilgangi að breyta þessu en vel má vera að það sé betra að kveða fastar á um það.
Hvað varðar þetta reiknaða endurgjald þá er ég ánægð með að hv. flm. skuli hafa tekið þær ábendingar mínar til greina og finnist að það sé virkilega skoðunarvert að athuga það út frá þeim forsendum sem ég gat um áðan.