Notkun steinsteypu til slitlagsgerðar

4. fundur
Fimmtudaginn 06. október 1994, kl. 13:39:54 (120)


[13:39]
     Flm. (Gísli S. Einarsson) :
    Frú forseti. Ég þakka góðar undirtektir, hæstv. umhvrh. og hv. þm., meðflutningsmönnum mínum fyrir athyglisverðar og góðar ábendingar til viðbótar því sem inn er lagt í greinargerðinni. Að lokum hlýt ég að treysta því að virðuleg samgn. ljúki málinu hið fyrsta.
    Ásamt mér flytja þessa tillögu, hv. þm. Kristín Einarsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Árni R. Árnason, Ingibjörg Pálmadóttir, Svavar Gestsson og Ragnar Elbergsson. Ég ítreka þakkir fyrir undirtektir.