Átak við að leggja jarðstrengi í stað loftlína

4. fundur
Fimmtudaginn 06. október 1994, kl. 13:46:54 (122)



[13:46]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Um leið og ég fagna því að þessi tillaga skuli vera komin fram og vænti þess að hún fái fullnaðarafgreiðslu í nefnd og ég tek undir allt það sem hv. flm. hefur sagt um nauðsyn þess að koma þessu máli áfram, þá langar mig til að spyrja hann hvort hann geri ráð fyrir því að þessari afgreiðslu ljúki og það verði fjárframlag á fjárlögum næsta árs til þess að takast á við þetta verkefni.