Tilkynning um kosningu embættismanna fastanefnda

6. fundur
Þriðjudaginn 11. október 1994, kl. 13:38:44 (167)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur bréf um að heilbr.- og trn. hafi kosið sér formann Gunnlaug Stefánsson og Ingibjörgu Pálmadóttur varaformann.
    Þá hefur einnig borist bréf um að menntmn. hafi kosið sér formann Sigríði Önnu Þórðardóttur og Petrínu Baldursdóttur varaformann.
    Borist hefur tilkynning um að félmn. hafi kosið sér formann Rannveigu Guðmundsdóttur og Guðrúnu J. Halldórsdóttur varaformann.
    Einnig hefur borist bréf um að samgn. hafi kosið sér formann Pálma Jónsson og varaformann Petrínu Baldursdóttur.
    Þá er einnig bréf um að landbn. hafi kosið formann Egil Jónsson og Gísla S. Einarsson varaformann.
    Iðnn. hefur kosið sér formann Svavar Gestsson og varaformann Gísla S. Einarsson.