[14:45]
Kristín Ástgeirsdóttir (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Eins og vitnað hefur verið til þá segir í 55. gr. þingskapalaga að hver þingflokkur eigi rétt á að fá tíma, samkvæmt þessari málsgrein lengdan, allt að tvöföldum ræðutíma ef fyrir liggur rökstudd beiðni þar að lútandi áður en frv. er tekið til umræðu. Ég vil upplýsa það að áður en umræða hófst gekk ég á milli stjórnarandstæðinga sem sæti eiga í fjárln. og spurði þá að því hvort þeir ætluðu að biðja um lengri ræðutíma og því var svarað neitandi nema hv. þm. Guðrún Helgadóttir sem taldi sig þurfa lengri tíma en það varð þó ekki til þess að formleg beiðni kæmi fram. Ég býst við að ef við hefðum sameinast um slíka beiðni þá hefði forseti orðið við því. En kannski má segja að við stjórnarandstæðingar hefðum þurft að bera saman bækur okkar eða að þeir þingflokkar sem hefðu óskað eftir lengri tíma hefðu átt að koma slíkri beiðni á framfæri. Það hlýtur alla vega að vera ljóst að umræðan er hafin, hæstv. fjmrh. hefur flutt ræðu sína og þar að auki einn af talsmönnum stjórnarandstöðunnar. Við verðum því að gjöra svo vel og sæta því að umræðan er hafin og samkvæmt þingsköpum er ekki hægt að breyta þessu.