Fjárlög 1995

6. fundur
Þriðjudaginn 11. október 1994, kl. 16:09:40 (195)


[16:09]
     Sigbjörn Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Formaður fjárln. er gefinn fyrir forvarnir. Formaður fjárln. er gefinn fyrir íþróttir. Formaður fjárln. er gefinn fyrir að afstýra slysum. Ég mun auðvitað leitast við að afstýra öllum þeim slysum sem kunna að finnast í þessu frv. Við í fjárln. munum auðvitað ræða við menntmrn. um þessi mál og ég get fullvissað hv. þm. Inga Björn Albertsson um það að formaður fjárln. er maður forvarna og mun reyna að koma í veg fyrir slys.