Fjárlög 1995

6. fundur
Þriðjudaginn 11. október 1994, kl. 20:38:02 (242)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseti vill upplýsa að þeim hæstv. ráðherrum sem ekki hafa fjarvistarleyfi eða hafa tilkynnt veikindaforföll hefur verið tilkynnt að þeirra sé óskað í þingsalinn. Forseti gerir sér reyndar ekki grein fyrir á þessari stundu hversu mörgum embættum hæstv. umhvrh. gegnir en mun eflaust geta fengið upplýsingar um það. ( SJS: Að minnsta kosti þremur.)
    En af þessum ástæðum telur forseti á þessari stundu að umræðan geti haldið áfram.