Fjárlög 1995

6. fundur
Þriðjudaginn 11. október 1994, kl. 21:12:01 (252)

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Forseti telur rétt að verða við þeirri ósk að fresta fundi og frestar fundi í 13 mínútur eða þar til kl. 21.05.
[Fundarhlé. --- 20:52]
    Á óformlegum fundi sem var haldinn af forseta með forsvarsmönnum þingflokka náðist ekki niðurstaða en forseti metur það þó svo að ekki sé ástæða til þess að fresta þessari umræðu. Henni verður haldið áfram. Það er vitað að heilbr.- og trmrh. er að koma til landsins rétt um þetta leyti og mun koma í þingið. Eftir því sem forseti best veit eru fleiri ráðherrar væntanlegir þegar líður á kvöldið. Forseti vill taka fram að gagnrýni stjórnarandstöðunnar er réttmæt hvað það snertir að hæstv. ráðherrar hafa mætt illa við umræðuna. Engu að síður verður henni haldið áfram. --- Hv. 8. þm. Reykn. hefur þegar talað tvisvar um fundarstjórn forseta og samkvæmt þingskapalögum er honum ekki heimilt að tala oftar og tekur þá til máls hv. 11. þm. Reykv.