Fjárlög 1995

7. fundur
Miðvikudaginn 12. október 1994, kl. 22:24:41 (337)


[22:24]
     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ég er ekki sammála honum um bankana. Að vísu eigum við þar sameiginlega hagsmuni því að bankarnir þurfa að kaupa skemmstu bréfin af ríkissjóði og halda þannig ríkissjóði gangandi þannig að það eru gagnkvæmir hagsmunir í þessu. Ég skal viðurkenna það. Markaðurinn er einn og hefur verið að þroskast og þróast og ég vona að hv. þm. sé mér sammála um það að aldrei fyrr í sögu lýðveldisins hafa verið tekin jafnstór og afdrifarík spor í þá átt að útbúa hér eðlilegan verðbréfamarkað, fjármagnsmarkað, sem ætti að geta staðist snúning öðrum lánsfjármörkuðum þegar við tengjumst þeim í náinni framtíð. Það sem þá mun gerast og skiptir öllu máli er að þá verður það ekkert umflúið fyrir íslenska fjármagnsmarkaðinn að lækka vexti þegar þeir lækka en hingað til hefur það verið mesta meinið hér að vextirnir hafa getað lifað sjálfstæðu lífi yfirleitt miklu, miklu hærri á skammtímamarkaðnum á Íslandi en annars staðar í heiminum. Þetta hefur gerbreyst og nú eru vextirnir mun lægri en annars staðar en það mun að sjálfsögðu færast í jafnvægi eins og á að gerast og hlýtur að gerast þar sem markaðslögmál ráða.
    Virðulegi forseti. Ég sé að það er enginn á mælendaskránni þannig að ég vil nota tækifærið, ég vona að ég misbjóði engum með því að nota hér tækifærið í andsvari mínu til að þakka hv. þm. fyrir ágæta umræðu hér við 1. umr. og vænti þess að við megum eiga gott samstarf um að koma þessu ágæta fjárlagafrv. í gegnum þingið.