Afnám tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum

14. fundur
Þriðjudaginn 18. október 1994, kl. 14:17:06 (496)

[14:17]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Við vitum það bæði, ég og hv. 5. þm. Austurl., að gamla fólkið hefur verið notað sem skálkaskjól fyrir þá fjármagnseigendur sem eru vel aflögufærir. Þessi mál hafa verið rædd að ég hélt innan Alþfl. og ég hélt jafnvel á tímabili að þeir meintu það eitthvað þingmenn Alþfl. að þeir vildu koma á slíkum skatti en mér heyrðist á síðasta ræðumanni, hv. 5. þm. Austurl., að það væru einhverjar vöfflur á þeim varðandi það. Það eru þekktar ákveðnar leiðir og ég þarf ekki að útskýra það neitt betur til þess að láta fjármagnstekjuskatt koma á þær fjármagnstekjur sem eru umfram þennan sparnað gamla fólksins og því er hægt að hætta að nota það fólk sem skálkaskjól.
    Varðandi upphæðirnar þá hefur verið fleygt, eins og hér kom fyrr fram í umræðunum, tölum sem eru allt frá 200 millj. upp í 2 milljarða sem hér sé um að ræða. Þetta þarf einfaldlega að athuga og ef hv. þm. er að gera því skóna að ég sé hlynnt því að fara að leggja hátekjuskatt á tekjur sem þarf til nauðþurfta þá er það mikill misskilningur. Ég hef raunar alltaf persónulega verið því fylgjandi að hér væri stighækkandi skattur eins og er t.d. í Noregi en að einu leyti eru aðrar aðstæður í Noregi en hér á landi, þar eru tekjur fólks almennt miklu hærri.