Afnám tvísköttunar af lífeyrisgreiðslum

14. fundur
Þriðjudaginn 18. október 1994, kl. 14:44:29 (505)

[14:44]
     Flm. (Guðmundur Hallvarðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég skal svara þessu fljótlega og má kannski gagnspyrja því að það hefur ekki komið nein stuðningsyfirlýsing við þáltill. mína frá Kvennalistanum. Ég held að sú leið að láta þessa þáltill. fara áfram muni leiða til fljótari afgreiðslu í gegnum þingsali. Það er mín skoðun. Ég mundi þess vegna fagna því mjög ef Kvennalistinn mundi styðja þessa þáltill. og vinna að framgangi hennar í efh.- og viðskn.