Skipan stjórna heilsugæslustöðva

15. fundur
Miðvikudaginn 19. október 1994, kl. 13:49:15 (567)

[13:49]
     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég lagði engan dóm á þetta mál annað en að taka það skýrt fram að heilbrrh., hver sem hann er, getur á meðan hann starfar ráðstafað skipun þessara mála eins og hann best kýs. Það gerði fyrrv. heilbrrh. í nokkrum tilvikum en flestallar þessar stjórnir hafa verið skipaðar af mér eftir að sveitarstjórnarkosningar fóru fram.