Tilkynning um utandagskrárumræðu

16. fundur
Fimmtudaginn 20. október 1994, kl. 10:31:49 (599)

    
     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill tilkynna að kl. 13.30 í dag fer fram utandagskrárumræða að beiðni hv. þm. Egils Jónssonar og verður landbrh. til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 50. gr. þingskapalaga og varir í hálfa klukkustund. Efni umræðunnar er fréttaflutningur ríkissjónvarpsins af verðmismun á landbúnaðarvörum hérlendis og erlendis.