Tilkynning um utandagskrárumræðu

16. fundur
Fimmtudaginn 20. október 1994, kl. 10:34:42 (601)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna orða hv. þm. mun ástæðan vera sú að hæstv. landbrh. var nefndur að hv. þm. hefur óskað eftir nærveru hans. Í þingskapalögum eru hins vegar engin ákvæði um það hverjir ráðherrar skuli vera viðstaddir umræðu utan dagskrár og má vel vera að óþarfi hefði verið af forseta að geta þess að hv. þm. hefði óskað eftir viðveru hæstv. landbrh. en auðvitað getur hver þingmaður sem óskar eftir umræðu utan dagskrár sett fram óskir um að ákveðnir hæstv. ráðherrar séu viðstaddir. Annað svar hefur forseti ekki við þessu.