Tilkynning um dagskrá

16. fundur
Fimmtudaginn 20. október 1994, kl. 10:52:38 (607)

[10:51]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegur forseti. Ég mun í sjálfu sér ekki setja mig upp á móti þessu þar sem ég býst við að hæstv. viðskrh. sé búinn að búa sig undir að mæla fyrir öllum málunum þremur í einu. Ég sé í sjálfu sér ekkert á móti því að mæla fyrir frv. um hlutafélög og einkahlutafélög í einu. En mér finnst hins vegar erfiðara að rökstyðja það að taka evrópsku hagsmunafélögin inn í þá sömu kippu. Ég held að það auðveldi ekki umræðuna.