[10:53]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég sagði það strax í upphafsorðum mínum að ég vildi gera athugasemd við þetta án þess að ég færi fram á að þessu væri breytt. Ég mun því ekki standa á því að þessu verði breytt. En ég verð að segja það, virðulegur forseti, að þeir sem gáfu það út að þetta mundi verða allt í lagi höfðu ekki fyrir því að ræða við forustu efh.- og viðskn. sem tekur við málinu og þarf að fjalla um það. Ég veit ekkert hvort það telst eðlilegt eða æskilegt að gera það en að mínu mati hefði það verið lágmark.