Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna um utandagskrárumræðu sem mun fara fram hér að lokinni atkvæðagreiðslu. Málshefjandi er Valgerður Sverrisdóttir, hv. 3. þm. Norðurl. e., og er hæstv. menntmrh. til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða, og fjallar um málefni Háskóla Íslands: Hefur þjóðin efni á annars flokks háskóla?