Samkomulag þingflokksformanna um mál á dagskrá

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 13:37:37 (782)

[13:37]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Kristínu Ástgeirsdóttur. Þingflokksformaður minn, Finnur Ingólfsson, skýrði mér frá þessu samkomulagi sem var um að taka þessi tvö mál og þar að auki síldarmálið og annað ekki. Hann sagði mér jafnframt að ef ekki tækist að klára þessi mál fyrir kvöldmat þá yrði kvöldfundur en ég fór heim í þeirri góðu trú að hin yrðu ekki tekin. Það er afar slæmt ef sú verklagsregla kemst á að samkomulag sem þingflokksformenn gera sín í milli um dagskrá heldur ekki.