Tilkynning um dagskrá

23. fundur
Þriðjudaginn 01. nóvember 1994, kl. 13:32:56 (983)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill upplýsa þegar í upphafi fundar að einungis verður fyrir tekið fyrra dagskrármál dagsins, þ.e. Grunnskóli, stjfrv., 126. mál, þskj. 131, 1. umr.
    Tvö bréf hafa borist forseta, annað frá þingflokki Samtaka um kvennalista og hitt frá þingflokki framsóknarmanna, þar sem farið er fram á að ræðutími verði að þessu sinni tvöfaldaður. Samkvæmt 3. málsl. 55. gr. laga um þingsköp er heimilt að verða við því og verður svo gert þannig að ræðutími í þessari umræðu verður tvöfaldur.