[14:50]
Gunnlaugur Stefánsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e., Steingrímur J. Sigfússon, hélt því hér fram að Austurlandið ætti ekki að fá, orðrétt, ,,sérstaka meðhöndlun``. Verkefnin væru svo mörg, stór og brýn í öllum kjördæmum, m.a. hér á höfuðborgarsvæðinu, að það væri engin þörf á því að Austurland fengi sérstaka meðhöndlun. Þessi afstaða hv. þm. er í blóra við afstöðu hv. 3. þm. Vesturl., sem hélt hinu gagnstæða fram um að það væri kominn tími til, eða þannig skildi ég orð hans, að efla hlut Austurlands vegna sérstakra aðstæðna sem þar væri við að etja. Þarna eru skiptar skoðanir í sama stjórnmálaflokki og það veldur mér vonbrigðum að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon skuli koma hér og sérstaklega snupra flokksbróður sinn, hv. þm. Jóhann Ársælsson, með þessum hætti. Ég hefði trúað því að hv. þm. Jóhann Ársælsson hefði verið búinn að kanna stöðu þessara mála í sínum þingflokki, en svo er ekki. Um þetta virðist vera ágreiningur. En ég skora á hv. þm. Steingrím J. Sigfússon að skoða málið aðeins í víðara samhengi og sjá að það hefur einmitt verið sameinast um sérstaka meðhöndlun í einstökum kjördæmum, t.d. á Vestfjörðum í sambandi við jarðgangagerð og m.a. í hans kjördæmi í sambandi við jarðgöng til Ólafsfjarðar.