Vegaframkvæmdir á Austurlandi

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 14:54:50 (1074)


[14:54]
     Gunnlaugur Stefánsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég fagna því að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon er um þessar mundir að skipta um skoðun frá því að hann hélt ræðu sína hér fyrir stuttu síðan. Hann sagði orðrétt, að Austurland þyrfti ekki sérstaka meðhöndlun og rakti síðan að það væru brýn verkefni í öllum kjördæmum og m.a. hér í Reykjavík. Nú í seinni ræðu sinni undir andsvari þá er hann að færast nær skoðun hv. þm. Jóhanns Ársælssonar og hv. þm. Egils Jónssonar og skoðunar minnar um að það væri sérstök ástæða til að efla hlut Austurlands af því að aðstæður væru þar um þessar mundir mjög sérstakar. Um þetta var verið að fjalla.