Vegaframkvæmdir á Austurlandi

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 15:30:22 (1088)


[15:30]
     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það væri auðvitað að mörgu leyti einfaldast að yppa öxlum yfir svona tillöguflutningi og láta sér í léttu rúmi liggja þó að svona plagg komi hér inn, fari til nefndar og sofni þar því að auðvitað verður aldrei annað með þetta gert, það vita menn, og er ekki til þess stofnað væntanlega í öðrum tilgangi en þeim að vekja athygli á málinu og það er svo sem gert í ýmsum tilvikum. En mér finnst bara ekki hægt annað en menn ræði hlutina eins og þeir liggja fyrir jafnvel þó svona tillöguflutningur sé á ferð sem hægt væri í sjálfu sér að leiða hjá sér. Það er svo barnalegt þegar menn ætla að flagga svona veifum algerlega á skjön við staðreyndir málsins, hinn lagalega grundvöll málsins og hefðir og venjur í framkvæmd fyrir utan að það er svo vitlaust vegna þess að auðvitað mundi svona tillöguflutningur ef hann næði

fram að ganga ekki hafa nein áhrif önnur en þau að splundra allri samstöðu um þessi mál. Það kæmu sjö tillögur daginn eftir að þessi yrði afgreidd, ein fyrir hvert kjördæmi, auðvitað. Þingmenn annarra kjördæma mundu ekki láta standa upp á sig með það að flytja jafngáfulegar og göfugar tillögur um sín kjördæmi eins og þessi er.