Jarðalög

25. fundur
Fimmtudaginn 03. nóvember 1994, kl. 16:45:42 (1169)


     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti vill taka fram að gefnu tilefni og þykir það leitt að honum var ekki ljóst að fallist hefði verið á þessa ósk. Ef svo hefur verið mun það að sjálfsögðu verða virt. En forseti kynnti sér aðstæður vegna þess að ósk barst til forseta eftir að hann tók við í forsetastóli og þessi skilaboð komu frá þeim forseta sem hafði setið áður, en mér var það ekki ljóst að það hefði þá þegar verið fallist á þessa beiðni þannig að þarna hefur þá verið misskilningur sem forseti mun að sjálfsögðu skoða og meta stöðu í ljósi þess. En forseta var ekki ljóst að á þessa ósk hefði verið fallist.